Fyrirkomulag kennslu
- Kennsla fer fram samkvæmt kennsluáætlun.
- Tímar eru bókaðir með fyrirvara og settir inn í Noona.
- Tilkynna þarf forföll eins fljótt og hægt er.
- Mæta á stundvíslega.
Við setjumst undir stýri – og tökumst á við þetta saman.
Að læra að keyra er meira en að fá bílpróf, það er upphafið að nýjum tækifærum og auknu sjálfstæði. Hér hefjum við ferðalagið saman, skref fyrir skref, markmiðið er að þú öðlist ekki aðeins færni til að standast bílprófið heldur verðir öruggur, sjálfstæður og ábyrgur ökumaður. Persónuleg kennsla, traust og gott andrúmsloft.
Ökunámið
Frá því að finna ökukennara til fullnaðarskýrteinis – hér er allt ferlið í 12 skrefum.
Veldu þér ökukennara og hafðu samband.
Sótt er um rafræna námsheimild á Ísland.is. Skila þarf inn passamynd ef hún er ekki þegar í kerfinu, ásamt undirskrift ökunema hjá sýslumanni.
Að lágmarki 10 verklegir ökutímar.
Leiðbeiningar og skilyrði fyrir leiðbeinendur er að finna á heimasíðu Samgöngustofu.
Ökuskóli 2 gildir í 2 ár og eftir það þarf að endurtaka hann.
Áður en farið er í ökuskóla 3 þarf að ljúka ökuskóla 1 og að lágmarki 10 ökutímum.
Til að skrá í bóklegt próf þarf ökunemi að hafa lokið við ökuskólana og 12 verklega ökutíma.
Undirbúningur fyrir verklegt próf. Til að fá að fara í verklegt próf þarf ökunemi að hafa staðist bóklegt ökupróf og lokið að lágmarki 15 verklega ökutíma.
Hér þarf nemandi að svara spurningum frá prófdómara (munnlegt próf) og standast verklega hluta ökuprófsins.
Standist ökunemi verklega ökuprófið fær hann bráðabirgðaskírteini sem gildir í 3 ár.
Ökunemi þarf að mæta til ökukennara í akstursmat og getur gert það eftir fyrsta ár með bráðabirgðaskírteini. Það er lokaskrefið að fullnaðarskírteininu.
Fullnaðarskírteini er gefið út að loknu akstursmati hjá ökukennara, hafi ökunemi ekki virka punkta í bráðabirgðaskírteini sínu.
Verðskrá
Verkleg ökukennsla er það sem hér er verðlagt. Að auki koma gjöld hjá hinu opinbera og prófagjöld.
| Þjónusta | Verð |
|---|---|
| Ökutími (45 mín.) | 16.000 kr. |
| Akstursmat | 16.000 kr. |
| Akstursmat á eigin bíl | 10.000 kr. |
| Aksturshæfni mat | 16.000 kr. |
| Leiga á bíl í ökupróf | 16.000 kr. |
Gera má ráð fyrir ýmsum kostnaði við ökunámið og ökuprófið. Meðal þess sem greiða þarf fyrir er:
Reikningur er sendur í heimabanka og afrit af reikningi fer í tölvupósti.
Samkomulag er við greiðanda um hvernig greiðslum er háttað: hægt er að greiða eftir hvern tíma, skipta námstímanum upp eða greiða allt í einni greiðslu.
Kennarar
Ökukennari
Ég heiti Bergdís Finnbogadóttir og hef starfað sem grunnskólakennari í 20 ár, þar af síðustu 6 ár sem stjórnandi í grunnskóla. Í júní 2026 lauk ég námi sem ökukennari.
Á mínum kennsluferli hef ég öðlast dýrmæta reynslu af því að vinna með fólki með ólíkar þarfir og átta mig á því að hver og einn lærir á sínum hraða. Ég legg því mikla áherslu á einstaklingsmiðaða kennslu, þolinmæði og jákvætt viðmót.
Markmið mitt er að skapa öruggt og afslappað námsumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til að byggja upp færni, sjálfstraust og öryggi í akstri á sínum eigin hraða.
Hjá mér fær hver nemandi þann tíma, stuðning og hvatningu sem hann þarf til að verða öruggur og ábyrgur ökumaður.
Hafa samband
Hringdu, sendu tölvupóst eða bókaðu tíma í Noona. Við svörum eins fljótt og við getum.
Tímar eru bókaðir í Noona og settir í kennsluáætlun. Sendu okkur línu ef þú ert ekki viss hvar þú stendur.